þriðjudagur, júní 28, 2005

Það eru að renna á mig tvær grímur varðandi þetta sumarfrí. Allt það sem ég var búinn að ákveða að gera og það sem ég ætlaði ekki að gera er farið að skorðast heldur betur. Ég er ekki búinn að taka eina mynd, ég hef engan áhuga á að standa inní myrkraherbergi, ég las fyrsta daginn í fríinu og ég er ekkert búinn að standa á línuskautum. Annars er ég búinn að drekka óhóflega mikið kaffi, éta súkkulaði eins og ég fái það launað og hanga eins og Jesús forðum. Hvað er að gerast á ég að drulla mér út og finna mér vinnu eða hvað. Á ég detta ofan í samviskudrullupollinn eða á ég bara að halda áfram að vera í fríi = drekkaétaoggeraekkert ? Góð spurning sem ég ætla ekki að eyða meiri tíma í ...

svona litur madur ut ef madur f�r hlaupabolu !!! Posted by Hello

föstudagur, júní 24, 2005


... konan m�n sem � dag er or�in hj�kka !!!! Posted by Hello
Criss ég vill bara þakka þér ...
það gerðist í kvöld ... að fólk gekk upp að mér og sagði ... eskimólógí ... ertu í rugli.
Ég veit ekki, er maðurinn á flótta eða eitthvað svoleiðis, er ljósmyndun ekki það sem ég vill ... eða vill ég bara hætta á toppnum ... hehe

laugardagur, júní 18, 2005


... Posted by Hello
Jæja það hlaut að koma að því ... sit hérna heima með skítaflensu. Allir eru hjá Stjána og Sollu og trallerí trallera ... og ég, ég er bara heima með beinverki og hita. Já það er svona þegar að maður fer að missa völdin á egóinu ... hehe. Annars er ég bara að vonast til að ég verði hress á morgun. Því þá er stefnt á strandferð með öllu tilheyrandi.

fimmtudagur, júní 16, 2005

Ahhhahhha AAAARRRRGGGGG ... Þetta er ekki að gerast. Mínir verstu óvinir eru í dag mínir bestu vinir. Haha allt út af einu 13 !! Sat og drakk mig smá drukkinn í skólanum í dag. Og það er greinilega búið að tala um "13strákinn", var reyndar næstum búinn að græta eina stúlku þar sem hún var lækkuð í einkunn út af mætingu ... 3% úps ég var með 11% !!! Sem er bara bensín á eldinn hjá mér !!! Jæja ég er á leið núna yfir til Heiðrúnar að syngja ... hei ég get allt í dag. ALLT !!!

miðvikudagur, júní 15, 2005

Jæja þá er það yfirstaðið ... og hvað gerði strákurinn. Þrátt fyrir 11 % skróp og allt það. 13 mínir kæru 13 !! Ekki nóg með það, þá er þetta í fyrsta sinn sem gefið er 13 í þessu fagi. Ég er ótrúlega bestur. En hvað um það þá er komið sumar og sól hérna úti á Amager. Stefnir allt í 27 stiga hita um helgina verður þetta betra !! Já ég rústaði líka drengjunum í póker í gær (annað sinn sem ég spila). Djöfull er ég að toppa þetta allt saman núna. Það er gott að fá svona andlega standpínu af og til.

mánudagur, júní 13, 2005

Ekki verið mikið að skrifa þessa dagana. Samt er allt í fullum gangi hérna á Amager. Var að klára að prenta myndir sem ég þarf að skila á morgun. Það á að meta mig ... hehe ég á eftir að taka það alvarlega ... eða ekki ! Annars lítur allt úr fyrir að það verða fjölmargir gestir hérna úti hjá okkur í sumar sem er alveg frábært. Meira fólk meira gaman. Ég er ekki að grínast það er fólk að bætast við á hverjum degi núna ... alveg fram í september, eða eitthvað svoleiðis. hmmmm jájá. Ég fékk fullt af fólki hérna á svæðinu til að "pósa" fyrir mig. Þúsund þakkir fyrir það, ég þarf reyndar að ná í sum ykkar aftur til að taka aftur. Bara af tæknilegum ástæðum ! Þið eruð öll alveg dúndur flott. Reyndar komu sum ykkar mér alveg skemmtilega á óvart, til dæmis ...

�etta er Brynd�s ... Posted by Hello