Mergur málsins er sá að þegar að maður er búinn að sitja og hamast við að gera 4 mínútna video í Premier í fjóra tíma án þess að það takist, þá er maður orðinn dálítið súr að innan. Sérstaklega ef klukkan er að verða 6 um morguninn og þú veist að þetta á að verða klárt eftir 3 tíma !! Þannig að ég er alveg hress og kátur bara ekki um daginn ...
föstudagur, maí 27, 2005
miðvikudagur, maí 25, 2005
..Í gær átti ég alveg góðan dag. Afmæli og allt það. Ég er samt ekki í góðu skapi ... ég held að ég sé að tapa mér. Ég hef engan áhuga á að finna mér stað ... ætli það sé ekki það.
þriðjudagur, maí 17, 2005
þriðjudagur, maí 03, 2005
mánudagur, maí 02, 2005
Í dag er ég að drepast úr leti. Fór í skólann, veit ekki af hverju. Kom heim og er ekki búinn að gera neitt að viti nema það helst að drekka kaffi og núna verð ég að fara út að taka myndir sem á að skila á morgun. Er ég að nenna því ... nei. En einhver verður að gera það. Er enn að bíða eftir upphringingu. Það er kannski ein af ástæðunum fyrir því að ég er ekki að nenna neinu núna. Eirðarleysi þið vitið.