mánudagur, desember 25, 2006

Þá eru komin jól.
Fyrir utan eru 13 bílar í stæðum fyrir framan. 7 af þeim eru með danskar númeraplötur, 2 með sænskar, 2 með færeyskar, einn á gulum og einn númerslaus. Magnað er það ekki. Nei kannski ekki, en það er ótrúlegt hverju maður tekur eftir þegar að maður er í náttfötunum fram eftir degi. Jæja hvað um það, þá verður maður að borða meira súkkulaði, osta, afganga síðan í gær og fara í matarboð... til að borða meira meira meira meira. Eftir áramót þá sko... já þá sko !

mánudagur, desember 04, 2006