sunnudagur, maí 18, 2008

Ég vona að bræður mínir á Íslandi séu ekki farnir að örvænta eftir myndum... þetta er allt að leka í gegn. Lenti í smá hasaríi í skóla og vinnu, bara stuð en kostaði mig bara meiri tíma en ég bjóst við. Annars er allt gott að frétta héðan, próf í byrjun júní, þá er þessi önn búin. Úlfur stækkar og eflist í skapi og Björn er bara besti bráðum fimm ára drengurinn á mínu heimili. Frúin, hún tekur sumarið í sig og verður bara fallegri með hverjum degi. Ég sjálfur sit á vinnustaðnum og reyni að lesa lagabálka um söfn og varðveislu, allt í lagi svosem.
Annað, þegar að maður er búinn að vera einn heima yfir heila helgi, þar sem fjölskyldan skellti sér til Suður Jótlands, þá verður maður ansi súr í restina. Það er að segja að þessir föstu rammar sem maður lifir við og styður við eru ekki alveg á sama stað - meira svona langt frá. Það er tildæmis ekkert gaman að elda góðan mat fyrir einn - og borða svo afganginn næsta dag, einn! Eða það að vakna og vera búinn að vera á fótum í fjóra tíma án þess að sjá aðra manneskju eða segja orð. Magnaður andskoti. Jæja best að skella sér í "þurrfóðrið" aftur.

fimmtudagur, maí 15, 2008

Það er verið að biðja mig um að búa til heimasíðu, er það nokkuð mál...? Ég veit það ekki, hef aldrei komið nálægt svoleiðis dótaríi.

sunnudagur, maí 04, 2008

Efnisorð:

laugardagur, maí 03, 2008

Vejret de kommende dage i København og Nordsjælland

föstudagur, maí 02, 2008

Sumarið er að leka inn í mig þessa dagana. Sólin og útiveran sem valda þessari sérstöku þreytu á kvöldin. Tærasta snilld !!