fimmtudagur, október 18, 2007

Jæja nú veit ég ekki hvað ég á að halda. Úlfurinn er bara úlfur í björnslíki. Á hverjum degi finnst mér yngri sonur minn líkast þeim eldri - meir og meir... ekki í skapi en útliti. Ég skal draga fram myndir til að rökstyðja þessa tilgátu mína. Tilgátan "þeirverðaeins" verður sönnuð

þriðjudagur, október 16, 2007

Af því að ég á að vera að lesa um Saqqaq kúltúrinn þá fór ég að skoða fasteignir á Íslandi og fór þaðan að reikna hvað það myndi kosta mig og mína að fjárfesta á Íslandi. Ef við hjónin tökum okkur lán fyrir íbúð uppá 25 milljónir, já ég veit við erum að tala fullorðinspeninga núna ehemm. Hvað um það, þá verður lánið komið uppí 176 milljónir rúmar eftir 40 ár þegar við erum að klára að borga af því samviskusamlega. Já og annað sem er enn meiri hvati er það að við myndum byrja á því að borga rétt rúm 138 þúsund á mánuði sem væri ekki svo slæmt ef það færi ekki uppí rúm 780 þúsund á mánuði miðað við 4,5 verðbólgu. Þá er ég orðinn hva... ég er núna 35 og eftir 40 ár hva 75 já já auðvitað ég er að hósta upp áttahundruð kalli plús á mánuði... hvaða rugl er þetta

þriðjudagur, október 09, 2007