mánudagur, mars 07, 2005

Það átti að setja allt í gang með að prenta út myndir sem ég á svo að afhenda á fimmtudag. Nei nei hvað halda þið ... prentarinn hálfbilaður í skólanum. Ef hann væri alveg bilaður fengjum við nýjan ... en nei hann er hálfbilaður (er það annars hægt). Talaði við einn kennarann minn í dag, frakki sem heitir Jean-Paul. Hann er það sem við köllum Íslandsvinur ... hvað sem það nú er. Ég er að reyna að muna slóðina á heimasíðuna hjá honum. Það kemur seinna. Annars er ég bara að gera mig kláran til að fara að svitna aðeins, svo þarf ég að drullast til að gera nokkrar myndir fyrir morgundaginn en þá á að halda áfram að prenta.
"Það var nú einmitt þessi djöfullega tortímingarhvöt, er nú náði valdi yfir mér" -Shusaku Endo.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

alveg magnað þessi.............umm.... oohhhhhhh aarrg alveg stolið úr mér hvað þetta heitir þarna en jamm rosalega ertu duglegur að finna þessar línur frá öðrum til að túlka þig eða hvað..... voðalega ertu minnugur maður að fanga þetta alltaf úr kollinum á þér.. jahérna hér.. minnugri en ég allavega....

hvernig gengur annars með neikvæðna gagnrýni hjá þér.... eh að gerast

h í F

12:27 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home