þriðjudagur, nóvember 27, 2007

Það er greinilegt að ég á að vera að skrifa ritgerð þessa dagana. Var að klára að hengja upp ljós í eldhúsinu/borðstofunni/stofunni, ljós sem er búið að vera undir rúminu okkar í hálft ár. Já maður þarf stundum að vera upptekinn við eitt til að framkvæma annað... eða eitthvað.
Meira af syni mínum, honum Birni Rafnari, sem er tæplega fjögura og hálfsárs. Hann hefur verið að sörfa á www.youtube.com eins og öll börn á hans aldri gera og um daginn féll hann fyrir KIZZ, síðan er hann búinn að vera að syngja "I was made for loving you baby, you were made for loving me". Tékkið á þessu !!!

1 Comments:

Blogger Heiðrún said...

Pældu í því ef þú værir að skrifa doktorsritgerð; þá myndirðu örugglega byggja hús!

8:56 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home