föstudagur, nóvember 25, 2005

Jæja þá er það um allt á netinu að Georg Best-a fyllibytta er látinn. Grætur boltaheimur ... mér gæti ekki verið meira sama. Ég vill minna ykkur á að það dóu 50 í Írak í gær og það lítur allt út fyrir það að minnst 35.000 manns deyja úr hungri og kulda í Pakistan á næstu mánuðum. Já það er skrýtið hvernig þessi heimur er settur saman. Ef einhver er að móðgast yfir því að ég skuli vera að kalla hann Georg heitinn fyllibyttu, þá biðst ég velvirðingar, en um leið bendi á að hver sá sem tekur svona nærri sér er bara lítið kjánaprik.

Rauðikrossinn

2 Comments:

Blogger Sigurður Högni Jónsson said...

Ég er ekki viss um að Ásgeir fái jafn fallegar kveðjur þegar skorpulifurinn hans gefur sig endanlega...
Tjúss von H703

6:17 e.h.  
Blogger Unknown said...

Ef það verður fjallað um Ásgeir í öllum miðlum, þá er það nóg fyrir hann.

4:50 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home