föstudagur, ágúst 01, 2008

Jæja þá er það komið á hreint. Þórður Hrólfur og Ólafur Rafnar eru á leið til USA þann 13.ágúst. Við millilendum á Íslandi í bakaleiðinni. Þannig að ég verð á Íslandi frá föstudagsmorgni 22. til sunnudags 24.ágúst. Ef einhver vill koma með mér út að leika eða bara dettíða þá láta endilega vita og þá skal ég gera allt í mínu valdi til að koma til móts við þær óskir... formlegt ikk ogsaa.
Við erum næstum því búin að ákveða hvernig þetta fer með Grænlandsferð. Líklega verðum við á Grænlandi, nánar til tekið í Sisimiut, frá maí 2009 til maí 2010. Djöss verður það gaman vóhó hundasleðar og snjór og hundar og snjór og sleðar og snjór og snjór og snjór og Úlfur já ekki gleyma honum og snjór og Björn, einmitt og snjór og Hrefna já já og snjór meiri snjór.

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

æi .... þið eruð svo frábær.... á grænlandi, amager hér og þar og alls staðar.... eilífð hamingja til ykkar.h

9:47 e.h.  
Blogger Sigurður Högni Jónsson said...

Ef enginn skárri býður sig fram get ég vel hitt þig...

11:55 f.h.  
Blogger Unknown said...

enginn skárri... það væri bara alveg þrælfínt að fá að hitta þig á Íslandi. Föstudagskvöld lock and loll ! Smala saman góðum hrútum og gera einhvern andskotann. I like.

11:57 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home