þriðjudagur, ágúst 01, 2006

Jæja þá veit maður það, fólkið sem er að mótmæla virkjunaframkvæmdum við Kárahnjúka eru bara dópistar og aumingjar. Það fannst líklega kannabisblandað tóbak á einum þeirra (hippa), sem kúldrast þarna fyrir austan í tjöldum eins og einhverjir frummenn. Nú veit maður það að ríkisstjórn Íslands (virðing) er að gera góðu hlutina og þeir sem eru að mótmæla eru erlendur óþjóðalýður sem neytir fíkniefna og ef þeir fá að halda sínu striki þá verða þeirra hryðjuverk óumflýjanlegur raunveruleiki í sögu okkar. Farið að mínu ráði og sendið þá heim áður en að þeir fremja fleiri brot sem eiga eftir að sverta okkar góða verk og samvisku.
Ísland er til að virkja. Koma svo, við skulum sko sína þessum villimönnum að við erum klár og kúl en ekki föst í einhverju fornaldarlegu Snorrabindi með bitlaus sverð og háskafullar kvensur. Ó nei við eruð framtíðarþjóð sem stefnum markvisst á heimsyfirráð eða dauða.

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

menn bara reiðir

9:17 f.h.  
Blogger Unknown said...

nei ekki reiður, bara smá kaldhæðni.

12:09 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

fjúkket mar... ;)

5:35 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

slaaaaka bara slaaaaaka

12:36 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hvað er þetta, hvað er hass á milli vina - best væri auðvitað ef hægt væri að gera út á þetta :)

3:49 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home